top of page

BETRI LÍÐAN Í HÁLSI OG BAKI

"HEIMA Í STOFU"

3 MÁNAÐA FJARÞJÁLFUN KR. 20.000

HÆGT ER AÐ BYRJA HVENÆR SEM ER!

LEIÐBEINANDI: Dr. HARPA HELGADÓTTIR, PhD Í LÍF- OG LÆKNAVÍSINDUM

SJÚKRAÞJÁLFARI OG SÉRFRÆÐINGUR Í GREININGU OG MEÐFERÐ Á HRYGG OG ÚTLIMALIÐUM.

HARPA HEFUR KENNT HÁLS- OG BAKLEIKFIMI Í YFIR 30 ÁR 

  • ​Námskeiðin eru 3 mánuðir með AÐGANG AÐ ÞJÁLFUNARGÁTT þar sem nýjar æfingar (2 x 30 mín) auk fræðslu kemur í hverri viku á ÞITT SVÆÐI. Þú getur horft eins oft og þú vilt, getur alltaf gert hlé á æfingum og byrjað þaðan sem frá var horfið. 

  • Á öllum námskeiðum er markvisst unnið að því að bæta tækni í æfingum svo að álagið sé uppbyggilegt fyrir hrygginn. Það er ekki nóg að bæta aðeins starfsemi í hálsi eða baki heldur þarf að byggja stoðkerfið upp sem heild. Það þarf að styrkja fótleggjavöðva og bæta starfsemi mjaðma og brjósthryggs til að jafna álagið svo að ekki verði ofálag á viðkvæma liði.

  • Fræðslan er einnig gífurlega mikilvæg þar sem rýna þarf í daglegar athafnir og venjur. Heilbrigður lífstíll skiptir miklu máli fyrir stoðkerfið og regluleg hreyfing eins og rösk ganga í um 30 mínútur á dag skilar betri árangri en lengri, erfiðari og óreglulegri göngutúrar. 

IMG_8965%20WS_edited.jpg

BETRI LÍÐAN Í HÁLSI OG BAKI  

 

ÞRJÚ ÁLAGSSTIG MEÐ EÐA ÁN LÓÐA.

 

2 x 30 mínútur í hverri viku auk fræðslu.

3 MÁNAÐA NÁMSKEIÐ KR. 20.000

BETRI LÍÐAN Í HÁLSI OG BAKI eru námskeið þar sem þú getur valið á milli þriggja álagsstiga. Til að bæta líðan og byggja upp betri starfsemi í hálsi og baki þarf álagið að vera hæfilegt og má ekki aukast of hratt ef mikil viðkvæmni er í vefjum. Það er því gott að vera raunsær og byrja að æfa á réttu álagi. Engin lóð eru notuð á stigi 1 en á stigi 2 eru notuð létt lóð sem þyngjast svo á stigi 3. 

DSC07429.JPG

BACKSMART MEРLÓÐUM

 

ÆFINGAKERFI ÆTLAÐ ÞEIM SEM VILJA BYGGJA SIG UPP MEÐ STYRKJANDI OG LIÐKANDI ÆFINGUM.

 

2 X 30 mínútna æfingalotur í hverri viku auk fræðslu.

3 MÁNAÐA NÁMSKEIÐ KR. 20.000

Álagsstigið er á bilinu 2 til 4 og er unnið með lóð og eigin þyngd. Farið er í æfingarnar frá grunni en álagið eykst hraðar á þessu námskeiði sem er einskonar HRAÐBRAUT og ekki hugsað fyrir þá sem hafa mikla viðkvæmni í hálsi eða baki. 

IMG_8958%20WS_edited.jpg

BETRI LÍÐAN Í HÁLSI OG BAKI

Á STÓL, MEÐ STUÐNING OG Á DÝNU

 

MJÖG LÉTTAR ÆFINGAR - ÁLAGSSTIG 0 TIL 1

2 x 30 mínútur í hverri viku auk fræðslu.

3 MÁNAÐA NÁMSKEIÐ KR. 20.000

Ef þú átt erfitt með að standa eða ganga í 20 mínútur í senn eða ef lítið þarf til að auka verki, skaltu byrja hér. Æfingarnar gera ráð fyrir að þú hafir lítinn styrk í fótleggjum, lítið úthald og lítið álagsþol. Æfingarnar eru gerðar á stól, á dýnu eða við vegg. Æfingar eru einnig gerðar í standandi stöðu í stuttan tíma í senn til að æfa upp styrk, jafnvægi og stöðugleika. 

DSC07519_edited.jpg

HÁLSSKÓLINN

ÆFINGAKERFI SEM MINNKAR VERKI Í HÁLSI OG BAKI AUK FRÆÐSLU UM HÁLSINN.

 

ÞRJÚ ÁLAGSSTIG MEÐ EÐA ÁN LÓÐA.

 

2 x 30 mínútur í hverri viku auk fræðslu.

3 MÁNAÐA NÁMSKEIÐ KR. 20.000

Ef þú vilt bæta líðan í hálsi, herðum og efra baki þá er mikilvægt að byggja upp frá grunni og vinna með hrygginn sem heild.
Styrktaræfingar, liðkandi æfingar, nudd og teygjur auk fræðslu þar sem leitast er við að draga úr verkjum og bæta álagsþol vefjanna.

bottom of page