Námskeið í Grensáslaug
Undir leiðsögn sjúkraþjálfara
Mánudaga og miðvikudaga
í hádeginu og eftirmiðdaga
Tímarnir eru tvisvar í viku, mánudaga og miðvikudaga.
Í æfingunum er vatnsyfirborðið í axlarhæð og er hitastig laugar 33°C.
Áhersla er lögð á að bæta líkamsstöðu, líkamsbeitingu og líkamsvitund.
Styrktaræfingar, jafnvægisæfingar, liðkandi æfingar og teygjur eru gerðar í hverjum tíma auk æfinga sem bæta samhæfingu og stöðugleika.
Þátttakendur fá fræðslu og heimaæfingar í hverri viku.
Í lauginni eru tveir heitir pottar með vatnsnuddi.
Bakleikfimi í laug
Léttar liðkandi og styrkjandi æfingar sem bæta líðan í hálsi og baki. Æfingar fyrir þá sem hafa einkenni frá hálsi og baki, gigt og sjúkdóma þar sem forðast þarf ofálag.
kl. 11.30 til 12.15
kl. 16.10 til 16.55
Leikfimi í laug
Fjölbreyttar æfingar þar sem áhersla er lögð á styrk, úthald og liðleika. Hver og einn stjórnar álaginu og getur valið að auka vatnsmótstöðuna með áhöldum.
kl. 12.15 til 13.00
kl. 17.00 til 17.45
kl. 17.50 til 18.35 "þrek og þol"
Námskeið hefjast 2. september.
Skráning hefst í byrjun ágúst.
Sendu okkur tölvupóst ef þú vilt fá tölvupóst þegar skráning hefst.
Netfangið er: bakleikfimi@bakleikfimi.com