Forskráningu er lokið!
Mánudaga og miðvikudaga kl. 16.10.
Hafðu símann hjá þér til að staðfesta skráningu með rafrænum skilríkjum!

1
Heilt námskeið
2. september til 21. desember
Verð kr. 88.700. Mánaðarleg greiðsludreifing, kr. 22.175.
Fyrsta skuldfærslan er við skráningu og svo mánaðarlega í samtals 4. skipti.
2
Hálft námskeið
2. september til 26. október
Verð kr. 49.884. Mánaðarleg greiðsludreifing, kr. 24.942.
Fyrsta skuldfærslan er við skráningu og sú síðari mánuði seinna. Samtals 2 skipti.
3
Hálft námskeið
28. október til 21. desember
Verð kr. 49.884. Mánaðarleg greiðsludreifing, kr. 24.942.
Fyrsta skuldfærslan er við skráningu og sú síðari mánuði seinna. Samtals 2 skipti.
Léttar æfingar sem byggja upp og bæta líðan í hálsi og baki.
Markmið æfinganna er að auka styrk, úthald, stöðugleika, jafnvægi og liðleika.
Æfingar fyrir þá sem hafa einkenni frá hálsi og baki, gigt og sjúkdóma þar sem forðast þarf ofálag. Námskeiðinu fylgir vikuleg fræðsla og heimaæfingar.
Tímarnir eru 45 mínútur í senn.
Hitastig laugar er 33°C og eru tveir heitir pottar með vatnsnuddi.
Í æfingunum er vatnsyfirborðið í axlarhæð og er áhersla lögð á að bæta líkamsstöðu, líkamsbeitingu og líkamsvitund.
Styrktaræfingar, jafnvægisæfingar, liðkandi æfingar og teygjur eru gerðar í hverjum tíma auk æfinga sem bæta samhæfingu og stöðugleika.
Í hverri viku færðu fræðslu og heimaæfingar. Þú getur valið að leggja áherslu á mjóbak og mjaðmir eða háls, efra bak og axlir.

