top of page
SKILMÁLAR

Upplýsingar um seljanda.

Seljandi er Breiðu bökin ehf, kt. 4901024420, til húsa að Friggjarbrunni 36, 113 Reykjavík.

 

Almennt.

Kaupandi verður að vera fjárráða til þess að geta keypt vöru frá Breiðu bökunum ehf. Eftirfarandi skilmálar gilda um viðskipti seljanda og kaupanda og notkun á netversluninni bakskolinn.thinkific.com. Um þjónustuviðskipti gilda skilmálar sem skilgreindir eru í lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003. Í vefversluninni eru í boði netnámskeið og hóptímar með upphafs- og lokadagsetningu. Breiðu bökin ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir ef greiðsla hefur ekki borist þegar 24 klst eru þar til námskeið hefst. Einnig til að hætta að bjóða upp á ákveðin námskeið eða vörur fyrirvaralaust. Harpa Helgadóttir er höfundur alls efnis sem keypt er á bakskolinn.com/bakleikfimi.com og er efnið einungis ætlað til einkanota kaupanda. Dreifing á myndefni í heild sinni er með öllu óheimil nema með leyfi frá höfundi.

 

Verð.

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum án virðisaukaskatts. Athugið að verð í vefverslun gætu breyst án fyrirvara.

Endurgreiðsluréttur.

Netnámskeið og önnur fjarþjálfun fæst ekki endurgreidd. Taka má hlé á netnámskeiði sem miðast við dagsetninguna sem tilkynning um slíkt berst á netfang: bakleikfimi@bakleikfimi.com 

Endurgreiðsla vegna hóptíma (eða inneign tíma) kemur einungis til greina ef fólk verður að hætta námskeiði samkvæmt læknisráði og miðast endurgreiðsla þá við dagsetninguna sem tilkynning um slíkt berst á netfang: bakleikfimi@bakleikfimi.com 
Skila þarf læknisvottorði og fæst þá endurgreitt að hámarki 80% af þátttökugjaldi. Ekki er endurgreitt eða veitt inneign vegna stakra veikindadaga.

Ábyrgðarskilmálar.

Kaupandi skal kynna sér vel lýsingu á vöru og hvort viðkomandi æfingaprógramm henti miðað við heilsufarssögu og núverandi ástand. Breiðu bökin ehf bera ekki ábyrgð á meiðslum eða öðru sem kann að koma upp á meðan æfingu stendur. Kaupandi er á eigin ábyrgð við framkvæmd æfinga. 

 

Afhending vara og kostnaður.

Öll netnámskeið og fjarþjálfun er send í tölvupósti á það netfang sem gefið er upp við pöntun innan við sólarhring frá því að greiðsla berst.

 

Greiðslur.

Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu SaltPay/SalesCloud. Hægt er að greiða með  kreditkortum frá Visa og MasterCard. 

 

Trúnaður.

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Seljandi meðhöndlar persónuupplýsingar kaupanda í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000. Vafrakökur eru notaðar til þess að greina umferð um vefinn. 

 

Varnarþing.

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

bottom of page