top of page

Skráning á námskeið
Mánudaga og miðvikudaga kl. 17.00 til 17.45

Breyting á verðum og greiðsludreifingu er vegna þess að
vorönnin er tveimur vikum lengri en haustönnin.

Hafðu símann hjá þér til að staðfesta skráningu með rafrænum skilríkjum!

IMG_6830b_edited.jpg

1

Heilt námskeið
frá 7. janúar til 13. maí

Verð kr. 95.220. Mánaðarleg greiðsludreifing, kr. 19.044.
Fyrsta skuldfærslan er við skráningu og svo mánaðarlega í samtals 5 skipti.

2

Hálft námskeið
frá 7. janúar til 9. mars

Verð kr. 53.550. Mánaðarleg greiðsludreifing, kr. 26.775.
Fyrsta skuldfærslan er við skráningu og sú síðari mánuði seinna. Samtals 2 skipti.

3

Hálft námskeið
frá 11. mars til 13. maí

Verð kr. 53.550. Mánaðarleg greiðsludreifing, kr. 26.775.
Fyrsta skuldfærslan er við skráningu og sú síðari mánuði seinna. Samtals 2 skipti.

Miðlungs erfiðar æfingar sem byggja upp stoðkerfið og bæta líðan.

Markmið æfinganna er að auka styrk, úthald, stöðugleika, jafnvægi og liðleika.

Æfingar fyrir þá sem hafa einkenni frá stoðkerfinu og vilja nýta eiginleika vatnsins í þjálfun.​ Námskeiðinu fylgir vikuleg fræðsla og heimaæfingar.

Tímarnir eru 45 mínútur í senn.

Hitastig laugar er 33°C og eru tveir heitir pottar með vatnsnuddi.

Í æfingunum er vatnsyfirborðið í axlarhæð og er áhersla lögð á að bæta líkamsstöðu, líkamsbeitingu og líkamsvitund.

Styrktaræfingar, jafnvægisæfingar, liðkandi æfingar og teygjur eru gerðar í hverjum tíma auk æfinga sem bæta samhæfingu og stöðugleika.

Í hverri viku færðu fræðslu og heimaæfingar. Þú getur valið að leggja áherslu á mjóbak og mjaðmir eða háls, efra bak og axlir.

IMG_6831_edited.jpg

Sundlaug LSH Grensás

við Álmgerði.

Grensásvegi 62, 108 Reykjavík.

bottom of page