
Leikfimi í laug í Boðaþingi
undir leiðsögn sjúkraþjálfara.
Hefst 4. september og stendur til 22. desember.
Þriðjudaga og föstudaga kl. 12.00 til 12.45.
Þú getur valið að vera einu sinni eða tvisvar í viku.
Miðlungs erfiðar æfingar sem byggja upp stoðkerfið og bæta líðan.
Æfingarnar auka styrk, úthald, stöðugleika, jafnvægi og liðleika.
Hver og einn stjórnar álaginu og getur valið að gera æfingarnar erfiðari með því að auka hraða hreyfinganna eða nota áhöld til að auka mótstöðuna. Námskeiðinu fylgir vikuleg fræðsla og heimaæfingar.
Hitastig laugar er 33°C og eru tveir heitir pottar með vatnsnuddi.
Í æfingunum er vatnsyfirborðið í axlarhæð og er áhersla lögð á að bæta líkamsstöðu, líkamsbeitingu og líkamsvitund.
Kennarar:
Katrín Björgvinsdóttir, sjúkraþjálfari.
Harpa Helgadóttir, PhD. Sjúkraþjálfari og sérfræðingur í stoðkerfisfræðum.
Skráning á námskeið
1
Þriðjudaga
kl. 12.00-12.45
Frá 8. september til 22. desember.
Verð kr. 49.980.
Mánaðarleg greiðsludreifing kr. 12.495.
2
Þriðjudaga og föstudaga
kl 12.00-12.45
Frá 4. september til 22. desember.
Verð kr. 88.000
Mánaðarleg greiðsludreifing, kr. 22.000.
3
Föstudaga
kl. 12.00-12.45
Frá 4. september til 18. desember.
Verð kr. 49.980.
Mánaðarleg greiðsludreifing kr. 12.495.







Sundlaugin í Boðaþingi.
Þjónustumiðstöðin Boðinn við Hrafnistu í Kópavogi.
Sundaugin er 33-34°C og það eru tveir heitir pottar með vatnsnuddi.
