top of page

BETRI LÍÐAN 

Í HÁLSI OG BAKI

 Á STÓL, MEÐ STUÐNING  OG Á DÝNU

3 MÁNAÐA NÁMSKEIÐ KR. 20.000.-

NÝ FRÆÐSLA OG ÆFINGAR Í HVERRI VIKU.

VELDU Á MILLI BAKSKÓLANS OG HÁLSSKÓLANS!
IMG_8958%2520WS_edited_edited.jpg

 BAKSKÓLINN

NÁMSKEIÐINU FYLGIR VIKULEG FRÆÐSLA UM BAKIÐ, ÆFINGAR, NUDD OG TEYGJUR SEM BÆTA STARFSEMI BAKSINS.

DSC07519_edited.jpg

HÁLSSKÓLINN

NÁMSKEIÐINU FYLGIR VIKULEG FRÆÐSLA UM HÁLSINN, HÁLSÆFINGAR, NUDD OG TEYGJUR SEM BÆTA STARFSEMI HÁLS OG EFRA BAKS.

Ef þú hefur lítinn styrk í fótleggjum og átt erfitt með að standa eða ganga lengi í senn er betra að byrja að gera æfingar á stól, á dýnu eða við vegg. Æfingar eru gerðar í standandi stöðu í stuttan tíma í senn  til að æfa upp styrk, jafnvægi og stöðugleika.  

Markvisst er unnið að því að bæta tækni í æfingum svo að álagið sé uppbyggilegt fyrir hrygginn. Það er ekki nóg að bæta aðeins starfsemi í hálsi eða baki heldur þarf að byggja stoðkerfið upp sem heild. Það þarf að styrkja fótleggjavöðva og bæta starfsemi mjaðma og brjósthryggs til að jafna álagið svo að ekki verði ofálag á viðkvæma liði.

 

Fræðslan er einnig gífurlega mikilvæg þar sem rýna þarf í daglegar athafnir og venjur. Heilbrigður lífstíll skiptir miklu máli fyrir stoðkerfið og regluleg hreyfing eins og rösk ganga í um 30 mínútur á dag skilar betri árangri en lengri, erfiðari og óreglulegri göngutúrar. 

SENDU OKKUR TÖLVUPÓST EF ÞÚ VILT FÁ MEIRI UPPLÝSINGAR   bakskolinn@bakskolinn.com
bottom of page