Skráning á námskeið
Mánudaga og miðvikudaga kl. 11.30 til 12.15
Breyting á verðum og greiðsludreifingu er vegna þess að
vorönnin er tveimur vikum lengri en haustönnin.
Hafðu símann hjá þér til að staðfesta skráningu með rafrænum skilríkjum!

Léttar æfingar sem byggja upp og bæta líðan í hálsi og baki.
Markmið æfinganna er að auka styrk, úthald, stöðugleika, jafnvægi og liðleika.
Æfingar fyrir þá sem hafa einkenni frá hálsi og baki, gigt og sjúkdóma þar sem forðast þarf ofálag. Námskeiðinu fylgir vikuleg fræðsla og heimaæfingar.
Tímarnir eru 45 mínútur í senn.
Hitastig laugar er 33°C og eru tveir heitir pottar með vatnsnuddi.
Í æfingunum er vatnsyfirborðið í axlarhæð og er áhersla lögð á að bæta líkamsstöðu, líkamsbeitingu og líkamsvitund.
Styrktaræfingar, jafnvægisæfingar, liðkandi æfingar og teygjur eru gerðar í hverjum tíma auk æfinga sem bæta samhæfingu og stöðugleika.
Í hverri viku færðu fræðslu og heimaæfingar. Þú getur valið að leggja áherslu á mjóbak og mjaðmir eða háls, efra bak og axlir.

