top of page

Skráning á námskeið
Mánudaga og miðvikudaga kl. 17.50 til 18.35

Breyting á verðum og greiðsludreifingu er vegna þess að
vorönnin er tveimur vikum lengri en haustönnin.

Hafðu símann hjá þér til að staðfesta skráningu með rafrænum skilríkjum!

IMG_6830b_edited.jpg

1

Heilt námskeið
frá 7. janúar til 13. maí

Verð kr. 95.220. Mánaðarleg greiðsludreifing, kr. 19.044.
Fyrsta skuldfærslan er við skráningu og svo mánaðarlega í samtals 5 skipti.

2

Hálft námskeið
frá 7. janúar til 9. mars

Verð kr. 53.550. Mánaðarleg greiðsludreifing, kr. 26.775.
Fyrsta skuldfærslan er við skráningu og sú síðari mánuði seinna. Samtals 2 skipti.

3

Hálft námskeið
frá 11. mars til 13. maí

Verð kr. 53.550. Mánaðarleg greiðsludreifing, kr. 26.775.
Fyrsta skuldfærslan er við skráningu og sú síðari mánuði seinna. Samtals 2 skipti.

Miðlungs erfiðar og fjölbreyttar æfingar sem byggja upp stoðkerfið og bæta líðan.

Áhersla er lögð á að auka styrk, úthald, stöðugleika, jafnvægi og liðleika.

Hver og einn stjórnar álaginu í æfingunum og getur valið að gera æfingarnar erfiðari með því að auka hraða hreyfinganna eða nota áhöld til að auka mótstöðuna. Skemmtilegir og fjörugir tímar með tónlist og stigvaxandi álagi.​​

Námskeiðinu fylgir vikuleg fræðsla og heimaæfingar.

Tímarnir eru 45 mínútur í senn.

Hitastig laugar er 33°C og eru tveir heitir pottar með vatnsnuddi.

Í æfingunum er vatnsyfirborðið í axlarhæð og er áhersla lögð á að bæta líkamsstöðu, líkamsbeitingu og líkamsvitund.

Styrktaræfingar, jafnvægisæfingar, liðkandi æfingar og teygjur eru gerðar í hverjum tíma auk æfinga sem bæta samhæfingu og stöðugleika.

Í hverri viku færðu fræðslu og heimaæfingar. Þú getur valið að leggja áherslu á mjóbak og mjaðmir eða háls, efra bak og axlir.

IMG_6831_edited.jpg

Sundlaug LSH Grensás

við Álmgerði.

Grensásvegi 62, 108 Reykjavík.

bottom of page