BETRI LÍÐAN Í BAKI
"HEIMA Í STOFU"
3 MÁNAÐA FJARÞJÁLFUN KR. 20.000
HÆGT ER AÐ SKRÁ SIG OG BYRJA HVENÆR SEM ER!
-
AÐGANGUR AÐ ÞJÁLFUNARGÁTT MEÐ NÝJUM ÆFINGUM OG FRÆÐSLU Í HVERRI VIKU.
-
UPPBYGGILEG ÞJÁLFUN FYRIR HRYGGINN MEÐ STYRKJANDI OG LIÐKANDI ÆFINGUM.
-
Í ÆFINGUNUM ER STOÐKERFIÐ BYGGT UPP SEM HEILD TIL AÐ EKKI VERÐI OFÁLAG Á VIÐKVÆM SVÆÐI.
-
SJÁLFSNUDD, TEYGJUR, GRINDARBOTNSÆFINGAR, DJÚPVÖÐVAÆFINGAR OG ÞINDARÖNDUN.
-
RÝNT ER Í LÍFSTÍL, DAGLEGAR ATHAFNIR OG VENJUR SEM VIÐHALDA AUKNU ÁLAGI Á STOÐKERFIÐ
LEIÐBEINANDI: Dr. HARPA HELGADÓTTIR, PhD Í LÍF- OG LÆKNAVÍSINDUM, SJÚKRAÞJÁLFARI OG SÉRFRÆÐINGUR Í GREININGU OG MEÐFERÐ Á HRYGG OG ÚTLIMALIÐUM (Man Ther).
ÆFINGAR Á STÓL OG MEÐ STUÐNING
MJÖG LÉTTAR ÆFINGAR
ÁLAGSSTIG 0 TIL 1
Fyrir þá sem hafa lítinn styrk í fótleggjum og eiga erfitt með að standa eða ganga lengi í senn. Fyrstu vikurnar eru æfingar gerðar á stól og í stuttan tíma í standandi stöðu með stuðning við vegg. Við reynum svo að lengja tímann í standandi stöðu á seinni vikum námskeiðsins.
ÆFINGAR MEÐ EÐA ÁN LÓÐA
LÉTTAR OG MIÐLUNGS ERFIÐAR
ÆFINGAR - ÁLAGSSTIG 1 TIL 3
Til að bæta líðan og byggja upp betri starfsemi í hálsi og baki þarf álagið að vera hæfilegt og má ekki aukast of hratt ef mikil viðkvæmni er í vefjum. Það er því gott að vera raunsær og byrja að æfa á réttu álagi. Engin lóð eru notuð á stigi 1 en á stigi 2 eru notuð létt lóð sem þyngjast svo á stigi 3.
BACKSMART HRAÐBRAUT
KRÖFTUGAR ÆFINGAR
ÁLAGSSSTIG 2 TIL 4
Fyrir þá sem vilja byggja sig upp með liðkandi og styrkjandi æfingum. Notuð eru lóð og eigin þyngdir en farið er í æfingarnar frá grunni. Álagið eykst hraðar á þessu námskeiði sem er einskonar HRAÐBRAUT og ekki hugsað fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir álagi í hálsi eða baki.