BETRI LÍÐAN Í HÁLSI OG BAKI
3 mánaða fjarþjálfun með vikulegri fræðslu og æfingum sem þú skoðar í tölvu eða snjallsíma.
Þú getur byrjað hvenær sem er, gert æfingarnar þegar þér hentar og það er velkomið að breyta um þjálfunarstig ef þér finnst æfingarnar of erfiðar eða of léttar.
Æfingarnar byggja upp stoðkerfið á heildrænan máta en þú velur á milli þess að leggja meiri áherslu á:
Bakið, mjaðmagrind og fótleggi eða háls, efra bak og axlir.
Verð kr. 20.000
(tveggja mánaða greiðsludreifing).
Leiðbeinandi: Dr. Harpa Helgadóttir, PhD, sjúkraþjálfari og sérfræðingur í stoðkerfisfræðum.
LEIÐBEINANDI OG HÖFUNDUR EFNIS
Dr. Harpa Helgadóttir hefur kennt bakleikfimi í þrjátíu ár eða frá því hún útskrifaðist sem sjúkraþjálfari árið 1991.
Harpa lauk sérfræðinámi í stoðkerfisfræðum og meistaragráðu frá háskóla í Bandaríkjunum árið 2005, þar sem hún starfaði um tíma. Doktorsgráðu lauk hún árið 2010 frá Háskóla Íslands þar sem hún rannsakaði starfsemi háls og efra baks hjá fólki með hálsverki. Harpa kenndi í fimmtán ár í Háskóla Íslands og er í dag með námskeið fyrir sjúkraþjálfara, bæði hér á landi og erlendis.